Lýsing
Ævintýraheimur Narníu, kilja sem geymir allar 7 Narníusögurnar í fullri lengd.
Bækurnar um Narníu standast tímans tönn og hrífa lesendur, unga sem aldna. Notast er við sömu þýðingu og áður sem þýðandinn, Kristín R. Thorlacius hafði endurskoðað. Bókin er tæpar 800 bls.
Stórkostlegar verur, hetjudáðir, ótrúlegir bardagar í stríði góðs og ills og ógleymanleg ævintýri sameinast í heimi þar sem töfrar og veruleiki mætast og hefur heillað lesendur á öllum aldri í rúm sjötíu og fimm ár. Í þessari nýju útgáfu eru upprunalegu frásögurnar um Narníu samankomnar, allar sjö í einu bindi.
C. S. Lewis varð fyrir áhrifum og heillaðist af Íslendingasögunum og norrænni goðafræði. Glöggir lesendur geta greint þennan áhuga við lestur Narníu-bókanna. Sögurnar af Narníu eru orðnar hluti af klassískum bókmenntum og eru taldar ein besta bókaröð allra tíma á sviði ævintýraskáldskapar sem selst hefur á heimsvísu í yfir 115 milljónum eintaka. Ævintýraheimur Narníu hefur verið kvikmyndaður, settur upp á leiksviði og gerðar þáttaraðir um hann fyrir sjónvarp. Nýlega varð Narnía fyrir valinu sem viðfang væntanlegrar þáttaraðar eða kvikmyndar á vegum Netflix.
Bókin fer ekki í almenna dreifingu fyrr en í vor. Hún verður til sölu hér á síðunni, á skrifstofu Kristniboðssambandsins og Basarnum, Háaleitisbraut 68.
Bókin kostar 6.000 krónur og sendingarkostnaður bætist við.




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.