• Um Salt
  • Fréttir
  • Bækur
    • Barnabækur
    • Alfa-bækur
    • Hugvekjubækur
    • Frásögur og minningar
    • Kristileg fræðsla

Fréttir af Bókaútgáfunni Salt ehf.

Líf í öðru veldi

mánudagur, 05 Desember 2011 11:48 Síðast uppfært mánudagur, 05 Desember 2011 15:05 Höfundur: Hermann Ingi Ragnarsson

lif-i-odru-veldi

Líf í öðru veldi. Upp úr hjólförum meðalmennskunnar með Guði.

John Bevere

Bókin fjallar um trú okkar og göngu með Guði. Hún er hvatning til að taka trúna alvarlega og leyfa henni að móta hug okkar, hjarta og verk.

Á bókarkápu segir: „Þráum við ekki öll að sjá, upplifa og framkvæma mikilfenglegri hluti en almennt gengur og gerist? Okkur stendur til boða að lifa lífinu í öðru veldi en samt sem áður virðumst við sætta okkur við meðalmennsku og grámyglu hverdagsins.

Í þessari mögnuðu bók fjallar metsöluhöfundurinn John Bevere um það mjög svo eftirsóknarverða líf sem Guð ætlar okkur að lifa. Búðu þig undir umbreytingu. Þér er ætlað líf sem býður upp á eitthvað miklu meira og betra en það sem hingað til hefur verið skilgreint sem árangur og lífsfylling.“

 

Kilja, 260 bls.

 

Verð kr. 2.990, okkar verð kr. 2.800.

Hún og hann - Hamingjuríkt hjónaband

mánudagur, 05 Desember 2011 11:41 Síðast uppfært mánudagur, 05 Desember 2011 15:16 Höfundur: Hermann Ingi Ragnarsson

hunoghann-kapaBók sem fjallar um grunnstoðir hamingjuríks hjónabands. Þar má nefna góð tjáskipti, ást í verki, lausn ágreiningsefna, mátt fyrirgefningarinnar, samband við foreldra og tengdaforeldra og gott kynlíf. Bókin hvetur fólk til að skoða eigið hjónaband og stíga skref í átt að því að bæta það. Gott hjónaband getur lengi orðið betra og slakt hjónaband hefur í sér tækifæri að batna til mikilla muna.

Höfundar þróuðu fyrir nokkrum árum vinsælt Hjónanámskeið sem kennt hefur verið í Bretlandi en einnig víða um heim við mjög góðar móttökur. Á bókarkápu segir m.a.: „Hún og hann er full af hagnýtum ráðleggingum,hún er auðlæsileg og henni er ætlað að búa okkur undir, byggja upp og jafnvel endur nýja hjónabönd.“

 

Kilja, 344 bls.

 

Verð kr. 3.290. Okkar verð 3.000 kr.

 

 

 

 

 

 

 

 

Ný bók - Konan með opna faðminn

fimmtudagur, 05 maí 2011 12:37 Síðast uppfært þriðjudagur, 06 Desember 2011 10:15 Höfundur: Hermann Ingi Ragnarsson

imma-kapanÚt er komin bókin Konan með opna faðminn. Lífshlaup og æviminningar Immu á Hernum. Bókin er gefin út í samstarfi við Hjálpræðisherinn á Íslandi en Ingibjörg Jónsdóttir brigader, öðru nafni Imma, lifði og starfaði innan Hersins frá unga aldri og þjónaði honum á Íslandi, Danmörku og Noregi ásamt Óskari Jónssyni brigader.

Sigríður Hrönn Sigurðardóttir  guðfræðingur og hjúkrunarfræðingur talaði við fjölda fólks til þess að fá eins heilsteypta mynd og kostur var af lífshlaupi og starfi Immu. Afraksturinn birtist í bókinni í lifandi og persónulegri frásögn.

Bókin kemur út í dag þegar 90 ár eru liðin frá fæðingu Immu, en hún lést í gær á fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Minningarsamkoma verður á Hjálpræðishernum á Akureyri á morgun, föstudaginn 6. maí kl. 17 þar sem bókin verður kynnt og útgáfu hennar fagnað.

Bókin er til sölu á afgreiðslu Salts ehf og Basarnum, Austurveri, Háaleitisbraut 68 og mun á næstu dögum fást einnig hjá Hjálpræðishernum, í Kirkjuhúsinu  og Glætunni við Laugaveg og í helstu bókaverslunum landsins.

Bókin er 220 bls, þar af 16 ljósmyndasíður.

Bókin kostar 4.990 krónur. Forlagsverð: 4.500 kr.

Bókaflokkar

  • Barnabækur
  • Alfa-bækur
  • Hugvekjubækur
  • Frásögur og minningar
  • Kristileg fræðsla

Tímaritið Bjarmi

© Salt ehf. Allur réttur áskilinn